21. október 2007 klukkan 19:46
Fékk hérna smá hugmynd að bloggi ... eða blogg og ekki blogg - þetta er svona saga, en
samt eiginlega ekki saga - sem að þið ætlið að hjálpa mér að semja. fékk þessa hugmynd
þegar að ég skildi eftir bara titilinn í síðasta bloggi - hitt eyddist út...þið eigið
eð fylla út í eiðurnar.. - skrifa í komment..hér er þetta:
Einu sinni fyrir _______ _________ sá _____ alveg hrikalega _____ _____. Þau fóru heim
til ____ og ______. Daginn eftir leið _____ eitthvað skringilega. Það getur ekki verið
að ég sé ______, hugsaði hún með sér ... því að í gærkvöldi var _____ notaður og hann á
jú að vera öruggur. Hún fór til öryggis út í apótek og keypti sér______. Niðurstaðan var
_________. Hvað á hún að gera? (persónulegt álit) mér finnst að hún ætti að __________________
13. október 2007 klukkan 22:24
01. október 2007 klukkan 20:00
Sæl og blessuð.
Nú hef ég ákveðið að hefja störf mín aftur, enda ekkert að vanbúnaði þannig að þá er bara að hefjast handa.
Mikið hefur dregið á daga mína núna undanfarin misseri. Sumarið byrjaði með stæl í Skinney-Þinganes, og var það nú bara alveg hrikalegt stuð. Fínt að geta vaknað klukkan fimm á morgnana, 6 daga vikunnar, og farið að sofa milli 9 og 10. Neibb, þannig er það nú ekki, réttara væri: Sumarið byrjaði ömurlega í Skinney-Þinganes, og var það alveg hrikaleg lífsreynsla. Ömurlegt að þurfa að vakna klukkan fimm á morgnana, 6 daga vikunnar, og fara að sofa milli 9 og 10. AAAAAllavega. Eftir þau hörmung þá var haldið á Fjórðungsmót á Iðavöllum, sem að var ekki lítið gaman. Þar var maður auðvitað að keppa, gekk þokkalega, endaði í 6. sæti...jæja, ekki svo slæmt, en hefði mátt takast betur. Þegar að því var lokið hófst þrældómurinn í Skinney aftur. En sem betur fer þá bauðst mér atvinnutilboð, sem að ég hreinlega bara gat ekki neitað, þannig að viðveran í Skinney eftir Fjórðungsmót varð ekki nema tvær vikur. Eftir það lagði ég land undir fót og fór galvaskur á Pulu. Pula (er á íslandi) er í nálægð við Hellu, um 15 mínútna akstur. Þar var ég að vinna við þjálfun á hestum, og var það nú bara ein paradís. Tíminn leið og áður en að maður vissi af var kominn skóli einu sinni enn. Eins frábært og það nú er (þess má geta að mér finnst þessi skóli frekar hvimleiður og ég er ekki alveg að fíla mig þarna). Ég er búinn að vera rosalega duglegur, er með að meðaltali svona 80% mætingu, sem að áður hafði alltaf verið 100% ... en tímarnir breytast og mennirnir með - eins og máltækið segir.
Jæja, ætli þetta sé ekki bara fínt - sem fyrsta blogg - en ég ætla nú að reyna ða vera duglegur að skrifa nokkrar færslur í hverri viku, einnig sem að ég verð að fara að gera eitthvað í þessum myndamálum.
-Hittumst heil
22. maí 2007 klukkan 23:21
Jebb, eða svona ný gömul eiginlega
eða allavega, skoðið þið hana..en það er einn hængur á .. þær eru tvær...obbobobb..en allavega:
www.folk.is/fjalar-glaesir ...skoðið endilega vinir og vandamenn
www.folk.is/-gunnar- ... lesið ÖLL bloggin!
22. apríl 2007 klukkan 09:39
Komiði sæl. Ég hef ekki bloggað í tvo daga vegna anna, en nú verður ráðin fram bót á því. Í gær var hestamót inná Stekkhól, ég var að sjálfsögðu að keppa, og gekk bærilega. Stóð þetta mót frá 10 um morguninn, og kláraðist um hálf 7 (kvöldi til). Var þetta hin mesta skemmtun. Keppt var í flokki barna, unglinga, ungmenna og svo var 1. flokkur og 2. flokkur, í tölti, fjórgangi og fimmgangi.
Svo um fjögurleitið þá fer ég með flugi suður til Reykjavíkur, þaðan liggur svo leiðin til Keflavíkur, nánar tiltekið á Leifsstöð, því að ég er að fara til Mongólíu að leita uppruna míns. Jújú, það er einmitt þaðan sem að langalanga-afi og langalanga-amma mín eru. Komu þau hér seint á nítjándu öld. Þau voru, eins og reyndar flestir, börn foreldra sinna en ég ætla að leita uppi ættingja mína, en ég hef verið í sambandi við nokkra í dulítinn tíma. Að sjálfsögðu er ég farinn að hlakka til, enda tel ég að þetta verði hin skemmtilegasta ferð. Því miður eru held ég ekki til tölvur þarna í landi, þannig að ég er ekki viss um að ég geti bloggað í þessa átta mánuði sem að ég verð í burtu. En hvað um það, ég hringi bara í alla sem að ég þekki og læt ykkur vita hvernig mér gengur, og hvernig mér líður, og hvernig landið er, og hvernig fólkið er, og hvernig ættingjar mínir eru, og hvað gamall ég verð orðinn (ég mun eiga afmæli þarna úti) o.s.frv., o.s.frv.
Óskiði mér nú góðrar ferðar og góðrar skemmtunar.
Gunnar er farinn
18. apríl 2007 klukkan 18:24
ætli ég skelli þá ekki inn einu bloggi, ég verð nú að standast mína plikt. Í dag var mér svo sagt að það væri ekki eins stutt í að hillary myndi kasta, eins og ég hafði haldið. En ég var samt rosalega duglegur í morgun, (ég náttúrlega hélt að hún væri alveg komin að köstun sjáið þið til) jújú, vitið menn, ég tók mig til og vaknaði klukkan hálf sex og hjólaði af stað inn á Dynjanda. Sú ferð tók mig hálftíma, og annan eins tíma tók ferðin til baka. Er ég kom heim var ég orðinn alveg hrikalega þreyttur, þannig að ég fór aftur að sofa, og svaf til átta. Þannig að: Krakkar, þið megið vera stolt af mér
en hvað um það. ég ákvað að setja saman smá skrýtlu um þessa ferð mína:
Inn á Dynjó hjólandi
upp í ferð ég lagði.
kom til baka grátandi
og þreytuna að mér lagði.
Er með svaka harðsperrur
eftir þessa hjólreið.
vegna þess að "hjólkerrur"
eru ekk' mín besta leið.
þannig að, bæjó þar til á morgun.
17. apríl 2007 klukkan 23:03
Jæja, ætli ÉG neyðist ekki til þess að standa við minn samning. Frá deginum í dag þá er ég í bloggátaki, hvað það mun vara lengi er stór spurning.
ég er með fréttir: Hillary mín er að fara kasta bráðum :D og ég ætla að greina frá því hér þegar að hún er köstuð. Eitt er það sem að vantar, það er nafn á folaldið. ÉG var kominn með þrjár nafnhugmyndir, og eina utanaðkomandi. Þau nöfn sem að ÉG fann eru: Bóthildur, Sigurhaddur og Meyvant. Utanaðkomandi nafn var Ástríða.
ÉG slæ því til nafnakeppni hér á þessari síðu. endilega allir að koma með nafn.
30. mars 2007 klukkan 12:20
Komið þið sæl.
Jújú, ég geri mér fulla grein fyrir því að ég sé lélegur bloggar, ég skal játa það á mig. Eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir þá stóðst kenningin hennar Hrefnu Rúnar ekki. Hvort sem að það er gott eða slæmt, það verðið þið að meta sjálf. Ég hef verið á fullu þessa dagana, er búinn að gera sama sem ekki neitt, svo mikið get ég sagt ykkur. Nú fer páskafríið að ganga í garð og þegar það er yfirstaðið þá koma samræmdu prófin, 2 vikum eftir páskafrí. Hvað um það. Þið kannski skiljið eftir ykkur kveðju ;)
Gunnar kveður
20. janúar 2007 klukkan 17:48
Halló heimur, halló heimur. Ég sit hér í hægðum mínum og er bara að láta mér leiðast. Ástæða þess að ég hefi ekkert bloggað undanfarið (rúman einn mánuð) er sú að ég skrapp til Indlands, það var mjög skemmtileg ferð. Ég er kominn aftur, sem betur fer, en ég var alveg að deyja útaf öllum þessum hita sem að er þarna úti. Svo leið mér eins og albinóa...”jú nó væ”.Hvað um það. Líf okkar hér á plánetu Jörð fer senn að ljúka, jújú, það er að koma heimsendir. Þó gæti verið að nokkrir burknar hér og þar á spáni gætu lifað af, en við komumst sennilega ekki að því. Ég fór í lýtaaðgerð eftir að ég kom heim, nú er ég allt annar maður. Mér líður eins og ég eigi bara að verða fyrirsæta eða eitthvað, en örlög mín liggja annarsstaðar. Ég fór í skjaldkyrtlatöku í miðjum desember, og gat því ekkert spilað fótbolta yfir jólin. Þótti mér það mikill ami, fótboltamanneskjan ég. Allavega. Ég skellti mér á járningarnámskeið, og ef að ykkur vantar einhvern til að járna hestinn ykkar, þá bara ... hér er ég ? Vil minna á síðu hjá 1991 árganginum, www.blog.central.is/1991-/ stórglæsileg síða, þótt ég segi sjálfur frá. Jæja, nóg komið að vitleysu úr mér í þetta sinnið, reyni að vera duglegri að blogga. Virðingarfyllst. Gönn
01. desember 2006 klukkan 15:21
Jæja, þá er ég, Gunnar, alveg að fara að leggja af stað til höfuðborgar Íslands, Reykjavíkur. Finnst mér það mikil ambaga, því að ég þoli ekki Reykjavík, finnst hún niðurdrepandi, niðurlægjandi, mannskemmandi, og svona mætti lengi áfram telja. En hvað um það ...
Vel er látið af hinni sívinsælu hljómsveit Írafár. Í kjölfar frestunar á fullveldisfagnaðinum hjá Heppuskóla hafa margar óskir borist til skólastjórnenda um að fá Írafár að spila á ballinu næstkomandi miðvikud.
Af sveppunum er að frétta að þeir komu hingað, en þeir eru ekki vanir svona skítaveðri þannig að þeir sneru við um staf (neðst á sveppinum, passar ekki: sneru við um hæl) þannig að ekkert verður að þessum sveppafaraldri.
Brátt munu allir landsmen drepast úr sótt, en sótt þessi mun einnig hafa mjög alvarlegar afleiðingar hjá öðrum lífverum heldur en hjá okkur mönnum, þörungar og pottaplöntur eru líka í stórhættu. Ekki er spurning um hvort heldur hvenær þetta á eftir að bresta á.
Nú eru íslendingar væntanlega farnir að hlakka mikið til jólanna, mismikið auðvitað, en víða má sjá fögur ljós í glugga, en það er bara góðs viti, að ég held.
Vil ég benda öllum sem að sækja þessa síðu að skrifa athugasemd, fyrir það væri ég mjög þakklátur.